Salt tapast með svita og með réttri gjöf verður ekki þörf á saltsteinum og öðrum bætiefnum. Þess vegna er Ferðaþokki mjög góður fóðurbætir í hestaferðum til að hesturinn þurfi ekki að eyða miklum tíma í saltát.
Saltþörf íslenskra reiðhesta er um 20-40 gr á dag, allt eftir því hversu mikið hesturinn erfiðar.
Ef gefið er 1 kg af Ferðaþokka er hestinum séð fyrir daglegum salþörfum (40 gr) við mikla vinnu.
Ráðlagður dagskammtur: 1-1,5 kg á dag fyrir hesta í mikilli þjálfun og á ferðalögum.