Ný áburðarverðskrá 2023

Áburðarrit Fóðurblöndunnar er komið út og í því má finna áburðarverðskrá og vöruskrá fyrir árið 2023. Verðskráin sýnir verð pr. tonn (án vsk.) miðað við afgreiðslu í 600 kg sekkjum (Limus® Pro 500 kg).

Ellefu áburðartegundir

Í vöruskránni má finna ellefu áburðartegundir sem eru sérsniðnar að þörfum landbúnaðar á Íslandi og byggja á traustum rannsóknum á íslenskum jarðvegi og heysýnum frá íslenskum bændum.

Fimm áburðartegundir innhalda selen og bætt hefur verið við brennistein, kalki og magnesíum í nokkrar áburðartegundir.

Hve mikið þarf að bera á?

Nokkur atriði sem hafa þarf í huga þegar kemur að vali á tilbúnum áburði og þættir sem hafa áhrif á nýtingu hans, bæði tilbúins áburðar og lífræns áburðar.

Í áburðarritinu Græði er tafla um almennt viðmið um áburðarþarfir á tún og akra gerða af Rannsókanarmiðstöð Landbúnaðarins sem hjálpa þeim sem eru að velta fyrir sér áburðarþörfinni.

Niðurstöður heyefnagreininga 2022

Í áburðarritinu má sjá niðustöður úr ríflega 2.000 heysýnum, sem voru tekin síðasta haust. 

Heyfengurinn í ár:

  • Hærri meltanleiki milli ára, nokkuð góður í ár.

  • Hráprótein breytilegt en lækkar að meðaltali, sérlega á Suðurlandi.

  • Trénið á passlegu bili í heildina, lækkar þó á milli ára.

  • Hærra sykurinnihald.

  • Steinefnin eru mismunandi á milli ára.

    • Lægra kalsíum en hærra selen.

    • Fosfór undir æskilegum viðmiðum sem fyrr.

    • Kalí lækkar milli ára.

    • Mismunandi áburðargjöf eða upptökuskilyrði?

Ítarlegri niðurstöður má sjá í Græði áburðarriti hér til hliðar, ásamt verðskrá. 

 

Græðir 2023 Verðskrá 2023 sölumenn og afgreiðslustaðir áburðar