Royal Canin Outdoor – þurrfóður fyrir virka útiketti
Royal Canin Outdoor er heildstætt þurrfóður fyrir fullorðna ketti á aldrinum 1–7 ára sem fara reglulega út og hreyfa sig mikið. Útikettir þurfa gjarnan orkuríkara fóður en innikettir þar sem þeir verja meiri tíma á ferðinni og verða fyrir breytilegu veðurfari.
Hátt orkuinnihald hjálpar til við að mæta aukinni orkuþörf virkra katta. Fóðrið inniheldur jafnframt andoxunarefni og góðgerlaörvandi efni sem styðja við náttúrulegar varnir líkamans og heilbrigða þarmaflóru.
Samsetning amínósýra og vítamína styður við heilbrigði húðar og felds. Ómega-3 fitusýrurnar EPA og DHA ásamt glúkósamíni og kondróitíni stuðla jafnframt að heilbrigði liða, sem er mikilvægt fyrir ketti sem hlaupa, hoppa og klifra reglulega.
Helstu eiginleikar
- Heildstætt þurrfóður fyrir fullorðna útiketti á aldrinum 1–7 ára.
- Hátt orkuinnihald mætir þörfum virkra katta sem fara reglulega út.
- Andoxunarefni styðja við náttúrulegar varnir líkamans.
- Góðgerlaörvandi efni stuðla að heilbrigðri þarmaflóru.
- Amínósýrur og vítamín styðja við heilbrigði húðar og felds.
- EPA, DHA, glúkósamín og kondróitín stuðla að heilbrigði liða.
- Samsetning fóðursins styður við heilbrigði þvagfæra.
Innihaldsefni
| Þurrkað alifuglaprótein |
| Hrísgrjón |
| Maís |
| Dýrafita |
| Hveiti |
| Vatnsrofin dýraprótein |
| Hveitiglúten |
| Maísglúten |
| Gerafurðir |
| Rauðrófumassi |
| Steinefni |
| Lýsi |
| Kókosolía |
| Sojaolía |
| Frúktó-fásykrur |
| Ger, uppspretta mannó-fásykra |
| Hjólkrónuolía (borage) |
| Morgunfrúarmjöl |
| Glúkósamín úr gerjun |
| Vatnsrofið brjósk, uppspretta kondróitíns |
Efnainnihald
| Efni | Magn |
|---|---|
| Prótein | 30% |
| Fita | 20% |
| Aska | 7,4% |
| Trefjar | 1,2% |
| EPA og DHA | 0,4% |
| Nýtanleg orka | 4.207 kcal/kg |
Aukefni í hverju kg
| Efni | Magn |
|---|---|
| A-vítamín (3a672a) | 32.300 IU |
| D3-vítamín (3a671) | 860 IU |
| Járn (3b103) | 35 mg |
| Joð (3b201, 3b202) | 3,5 mg |
| Kopar (3b405, 3b406) | 11 mg |
| Mangan (3b502, 3b504) | 46 mg |
| Sink (3b603, 3b605, 3b606) | 133 mg |
| Selen (3b801, 3b811, 3b812) | 0,05 mg |
Fóðrið inniheldur einnig andoxunarefni.



