Fóður
Sýna allt 14 niðurstöðurSorted by latest
Vöxtur
Á lager
134 kr. – 135.264 kr.Price range: 134 kr. through 135.264 kr. með vskVöxtur er kjarnfóður fyrir kálfa og ungneyti, sérhannað til að styðja við mikinn en heilbrigðan vaxtarhraða. Fóðrið styður við vöxt vöðva og stoðkerfis og hentar vel þegar markmiðið er að byggja upp sterka, hrausta og vel þroskaða gripi.
Vöxtur er góður kostur eftir kálfaköggla og nýtist sem hluti af markvissri fóðuráætlun fyrir áframeldi, þar sem lögð er áhersla á góðan þroska, jafnan vöxt og hagkvæma fóðrun.
Róbót – Hy-D®
Á lager
127 kr. – 143.671 kr.Price range: 127 kr. through 143.671 kr. með vskRóbót – Hy-D® er lystug kjarnfóðurblanda fyrir mjólkandi kýr, sérstaklega hentug til gjafar í mjaltaþjónum. Blandan er samsett með hentugu samspili ólíkra sterkjuafurða og hefur frábær kögglagæði sem tryggja góða flæði- og notkunareiginleika í fóðurkerfum.
Fóðrið inniheldur Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmiskerfi og almennt heilsufar mjólkurkúa. Fáanlegt sem Róbót 16 og Róbót 20.
H-kögglar
Á lager
160 kr. – 4.556 kr.Price range: 160 kr. through 4.556 kr. með vskH-kögglar eru kjarnfóður fyrir mjólkurkýr sem hentar sérstaklega vel með blautverkuðum rúllum og próteinsnauðu heyi. Fóðrið er góður kostur þegar bæta þarf upp prótein og næringu í gróffóðri og styðja við jafnvægi í daglegri fóðrun.
H-kögglar henta vel fyrir kúabú sem vilja einfalt, lystugt og markvisst kjarnfóður til að styðja við mjólkurframleiðslu, fóðurnýtingu og almennt heilbrigði mjólkurkúa.
Kúakögglar – Hy-D®
Á lager
0 kr. – 130.592 kr.Price range: 0 kr. through 130.592 kr. með vskKúakögglar – Hy-D® eru orkuríkar og fiskimjölsríkar kjarnfóðurblöndur fyrir mjólkandi kýr. Blöndurnar hafa reynst einstaklega vel í fjölda ára og henta vel fyrir hátt framleiðslustig, þar sem markmiðið er að styðja við góða nyt, fóðurnýtingu og heilbrigði gripa.
Kúakögglar innihalda hátt hlutfall maís sem gerjast hægt í vömb og nýtist sem góður orkugjafi. Fóðrið inniheldur einnig Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.
Feitur Róbót – HY-D®
Á lager
138 kr. – 151.135 kr.Price range: 138 kr. through 151.135 kr. með vskFeitur Róbót – Hy-D® er sérlega orkuríkt kjarnfóður fyrir mjólkandi kýr, hannað til að styðja við aukna mjólkurfitu, góða nyt og heilbrigði gripa. Blandan inniheldur mikið magn sykurrófuhrats, trefjar sem nýtast vel til mjólkurfitumyndunar, ásamt ríkulegu magni þurrfitu.
Fóðrið inniheldur einnig íslenska kalkþörunga sem styðja við jafnvægi á sýrustigi vambarinnar, auk Hy-D®, lífvirks og hraðvirks D-vítamíns sem styður við kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar mjólkurkúa.
Maískögglar
Á lager
113 kr. – 119.217 kr.Price range: 113 kr. through 119.217 kr. með vskMaískögglar eru orkuríkur fóðurbætir sem hentar vel með öðru fóðri þegar auka þarf orku í fóðrun mjólkurkúa. Fóðrið er glúkógenísk orkuviðbót sem nýtist sérstaklega vel á snemm-mjaltaskeiði, þegar orkuþörf kúnna er mikil.
Maískögglar geta stutt við betra heilsufar, aukið orkujafnvægi og dregið úr líkum á súrdoða. Þeir henta vel sem hluti af markvissri fóðuráætlun þar sem lögð er áhersla á góða nyt, fóðurnýtingu og heilbrigði gripa.
Kálfakögglar
Á lager
152 kr. – 156.978 kr.Price range: 152 kr. through 156.978 kr. með vskKálfakögglar eru próteinríkt og steinefna- og vítamínríkt kjarnfóður fyrir kálfa frá tveggja vikna aldri. Fóðrið inniheldur ríkulegt magn af fiskimjöli og vel samsetta próteingjafa sem styðja við vöxt, þroska og góða byrjun í uppeldi kálfa.
Kálfakögglar örva þroska vambarinnar og hjálpa kálfum að ná upp góðu áti samhliða mjólkurgjöf, áður en þeir hætta alveg á mjólk. 6 mm kögglastærð stuðlar að góðu áti og getur flýtt fyrir vexti.
Feitur KK – Hy-D®
Á lager
150 kr. – 159 kr.Price range: 150 kr. through 159 kr. með vskStutt lýsing
Feitur KK – Hy-D® er orkuríkt kjarnfóður fyrir mjólkandi kýr, byggt á gömlu góðu Kúakögglunum með viðbættri vambarvarðri fitu. Fóðrið er sérstaklega hentugt fyrir hámjólka kýr, einkum snemma á mjaltaskeiði þegar orkuþörfin er mikil.
Feitur KK – Hy-D® er hannað til að styðja við mjólkurframleiðslu, auka mjólkurfitu og bæta heilsufar gripa. Fóðrið inniheldur Hy-D®, lífvirkt og hraðvirkt D-vítamín sem styður við kalkefnaskipti, ónæmiskerfi og almenna hreysti mjólkurkúa.
Eingöngu selt í lausu.
Eldi
Á lager
124 kr. – 128.431 kr.Price range: 124 kr. through 128.431 kr. með vskEldi er kjarnfóður fyrir nautgripi í lokaeldi, bæði naut og kvígur. Fóðrið er sérstaklega samsett til að styðja við vöxt, fallþunga, kjötgæði og fitusprengingu síðustu 1–3 mánuðina fyrir slátrun.
Fóðrið inniheldur viðbætt E-vítamín sem safnast upp í vöðvum og getur hjálpað til við að vernda kjötið eftir slátrun, sem stuðlar að fallegri og verðmætari afurð.
DK – Hy-D®
Á lager
131 kr. – 142.946 kr.Price range: 131 kr. through 142.946 kr. með vskDK – Hy-D® er vandað kjarnfóður fyrir mjólkurkýr, sérstaklega hentugt sem grunnblanda þegar gefnar eru fleiri en ein tegund kjarnfóðurs. Blandan inniheldur Hy-D®, lífvirkt D-vítamín sem styður við D-vítamínstöðu, kalkefnaskipti, ónæmi og almennt heilsufar gripa.
Fóðrið er fituhúðað, með góð kögglagæði og er nánast ryklaust, sem gerir það lystugt og þægilegt í meðhöndlun.
Geldstöðukögglar Hy-D®
Á lager
159 kr. – 161.175 kr.Price range: 159 kr. through 161.175 kr. með vskGeldstöðukögglar Hy-D® eru hágæða kjarnfóður fyrir geldkýr, sérhannað til að styðja við heilsu, undirbúning fyrir burð og góðan upphafsfasa á næsta mjaltaskeiði.
Fóðrið er próteinríkt og inniheldur Hy-D®, E-vítamín, bíótín og magnesíum. Það styður við vömbina, hjálpar til við uppbyggingu próteinforða og getur stuðlað að heilbrigðari kúm, sterkari kálfum og betri afurðum eftir burð. Gefið á geldstöðu, 2 kg á dag. Gefið ekki mjólkandi kúm.
Kálfamúslí Euroflakes 25kg
Á lager
5.827 kr. með vskLystugt og gott kálfamúslí. Vöxtur og þroski á vambatotum er lykilatriði í kálfaeldi. Þær þurfa sterkju til að vaxa eðlilega. Leggðu grunn að góðri framleiðsluframtíð kálfsins. Inniheldur 19% prótein.
Feitur Extra 18 Hy-D®
Á lager
151 kr. með vskVöxtur er kjarnfóður fyrir kálfa og ungneyti, sérhannað til að styðja við mikinn en heilbrigðan vaxtarhraða. Fóðrið styður við vöxt vöðva og stoðkerfis og hentar vel þegar markmiðið er að byggja upp sterka, hrausta og vel þroskaða gripi.
Vöxtur er góður kostur eftir kálfaköggla og nýtist sem hluti af markvissri fóðuráætlun fyrir áframeldi, þar sem lögð er áhersla á góðan þroska, jafnan vöxt og hagkvæma fóðrun.