Landbúnaður
Sýna 253–270 af 296 niðurstöðurSorted by latest
Raða eftir
Sía eftir verði
Litir
Stærð
Birgðastaða
Fáanlegt í verslun
Staldren þurrkefni 25kg
Á lager
4.196 kr. með vskBylting í sóttvörnum!
Staldren er notað til að bera undir allan búfénað og gegnir hlutverki sínu á óviðjafnalegan hátt.
Virkar mjög vel gegn útbreiðslu á slefsýki.
Gul tútta fyrir CF500/1000 10pk
Á lager
10.110 kr. með vskGul tútta fyrir Delaval CF500/1000, 10 stk í pakka.
Gula túttan inniheldur efni sem hefur sýnt fram á bakteríudrepandi virkni.
Hægt er að skipta auðveldlega um túttuna án þess að nota verkfæri, og þegar hún er notuð samhliða góðu hreinlæti getur hún dregið verulega úr hættu á smiti milli kálfa.
Moocall – Gefur þér samband við óbornu kúnna.
Á lager
82.500 kr. með vskMoocall er sett á halann á óbornu kúnni. Um 23 klst fyrir burð lætur Moocall vita þegar kýrin er að fara að bera með því að senda eiganda sínum skilaboð í símann.
Vambarbætir 20 kg
Á lager
6.889 kr. með vskSérhannað fyrir íslenskar mjólkurkýr
Lifandi ger með viðbættum steinefnum og vítamínum, til íblöndunar við gróffóður.
Gerið étur upp súrefni í vömbinni og bætir þar með starfsumhverfi vambarörvera. Gerið kemur einnig jafnvægi á sýrustig vambarinnar, sem stuðlar að betri fóðurnýtingu. Steinefna- og vítamínmagn er sérlagað eftir þörfum íslenskra mjólkurkúa, með íslensku kjarnfóðri.
Orkustampur 22,5 kg
Á lager
9.908 kr. með vskOrkustampur er steinefnastampur sem er sérhannaður til að auka orku og meltanleika
- Auðkennist með rauðu loki.
- Eykur matarlyst
- Eykur meltanleika um allt að 10%.
- Bætir upp efnaskort
- Eykur upptöku á próteini og orku.
Orkustampur er fyrir jórturdýr, kindur og kýr.
Orkustampur hentar hestum ekki.
Steinefnablanda í fötu 25 kg
Á lager
9.908 kr. með vskSteinefnastampurinn hentar jafnt úti sem inni, enda er innihaldið sérstaklega veðurþolið.
- Auðkennist með grænu loki.
- Alhliða stampur fyrir jórturdýr og hesta
- Sérvalin næringarefni
- Hentar til sjálffóðrunar
- Hentar vel mjólkandi kúm
- E-Vítamín ríkur
Kálfamjólkurduft – silfur 25kg
Á lager
16.864 kr. með vskHágæða kálfamjólkurduft frá Schils.
25 kg.
Lambamjólk 10kg Schils
Á lager
8.172 kr. með vskHágæða lambamjólkurduft sem er ætlað til fóðrunar á lömbum í tilvikum þar sem ær ná ekki að mjólka nóg. Lambamjólkin frá Schils inniheldur m.a 50% undanrennuduft og öll þau næringarefni sem eru lömbum nauðsynleg.
Mjólkurduft fyrir ungkálfa – 25 kg.
Á lager
14.658 kr. með vskKálfamjólkurduftið sem er framleitt af MS inniheldur hreinar íslenskar mjólkurafurðir.
Blandan hefur verið endurbætt með það fyrir augum að hún henti íslenskum kálfum enn betur en sú gamla gerði. Þetta felst í auknum lystugleika og þáttum sem stuðla að auknum vexti og góðu heilbrigði. Duftið er nú úðaþurrkað en þurrkunaraðferðin hjálpar til við að varðveita upphafleg gæði mjólkurinnar sem er notuð í blönduna. Úðaþurrkað duft er auk þess nokkuð auðleystara en valsaþurrkað duft.
Lifeline lömb og ær
Á lager
12.353 kr. með vsk22,5 kg.
Lifeline Lamb & Ewe steinefnastampurinn er einstakur að sinni gerð þar sem samsetningu hans er ætlað að tryggja sem best heilbrigði ófæddra lamba og lambánna um leið.
Lifeline geldstöðustampur 22,5
Á lager
12.388 kr. með vskStampurinn er fyrir kelfdar kýr, fyrir burð. Eflir ónæmi ófæddra kálfa.
• Gefið stampinn 2-6 vikum fyrir burð
• Ekki er mælt með að gefa önnur stein og snefilefni á meðan gefið er Lifline.
• Inniheldur lágt kalsíum
• Ekki fyrir mjólkandi kýr
• Mælt er með að gefa daglega 150 g. pr. kú.
Sauðfjárstampur 15 kg
Á lager
6.981 kr. með vskAlhliða sauðfjárstampur – sérframleitt fyrir íslenskt sauðfé
- Hagstætt hlutfall af kalsíum, magnesíum og fosfór.
- Hentar fyrir fé á öllum aldri, allan ársins hring.
- Uppfyllir steinefna/snefilefna/vítamín þarfir gripanna.
Sólaráburður Solosun SPF30 250ml
Á lager
Solosun SPF 30 er vatnsþolin sólarvörn fyrir dýr sem ver viðkvæm, ljós og lítið litarefnarík húðsvæði gegn UVA- og UVB-geislum sólarinnar. Hentar vel á nasir, múl, trýni, júgur og önnur berskjölduð svæði. Án ilmefna og litarefna.
KNZ Frjósemissteinn selen/joð10 kg
Á lager
1.724 kr. með vskKNZTM FERTILITY
Bætir frjósemi
Inniheldur selen, joð og E vítamín.
Kalksaltsteinn 7,5 kg
Á lager
4.335 kr. með vskKalksalt ehf. er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir saltbætiefnafötur fyrir búfénað en saltið í bætiefnafötunum kemur frá fiskverkunum í nágrenninu.
Gamlir bændur þekkja vel gæðin sem felast í salti sem hefur komist í návígi við fisk, því saltið dregur í sig prótein, vítamín og snefilefni frá fisknum sem hefur svo góð áhrif á kýr, kindur og hesta.
Kalkþörungarnir sem varan dregur nafn sitt af, koma frá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal. Kalk hefur góð áhrif á vöxt beina, tanna, ullar og felds.
Kúabændur sem nota kalksalt hafa einnig talað um að frumutala hafi lækkað og fita hækkað hjá kúnum eftir að þeir fóru að gefa kalksalt.
Kalksaltið er steypt í melassa sem gerir það afar lystugt. Að auki eru í því selen, A vítamín, E vítamín og D3.