Rakel er uppskerumikið vallarfoxgras sem gefur meiri endurvöxt en norðlæg yrki. Á móti kemur að vetrarþolið er minna en hjá þeim þolnustu. Rakel hentar því vel þar sem ræktunarskilyrði leyfa og markmiðið er að nýta meiri endurvöxt og uppskeru yfir vaxtartímann. Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.
Helstu kostir
Uppskerumikið
Gefur meiri endurvöxt
Hentar vel þar sem markmiðið er öflug spretta
Góður kostur við hagstæðari aðstæður



