Hvað er HY-D?

Hy-D® er lífvirkt form D-vítamíns sem frásogast beint í blóði, ólíkt hefðbundnu D3 sem fer í gegnum hægari umbreytingu í lifur. Rannsóknir sýna að kýr ná oft ekki æskilegum styrk D-vítamíns í blóði – jafnvel þegar þær eru á beit og í sólríkara landi en á Íslandi. Hy-D® tryggir hraðari og skilvirkari frásog til að styðja ónæmi, beinstyrk og framleiðslu.

Ávinningur þess að nota HY-D®

Einstök virkni – betri nýting og hraðara frásog

Lífvirkt D-vítamín skiptir máli – fyrir heilsu, frjósemi og afurðir

D-vítamín gegnir lykilhlutverki í mörgum grundvallarferlum í líkama nautgripa – ekki aðeins fyrir beinheilsu, heldur einnig fyrir frjósemi, ónæmiskerfi, vöðvastarfsemi og jafnvel virkni hormóna. Þegar D-vítamín er ekki nýtt nægilega vel, geta kýr orðið viðkvæmari fyrir sýkingum, lent í kalkskorti eftir burð og átt erfiðara með að skila hámarksnytum.

Hy-D® er lífvirkara form D-vítamíns sem líkaminn nýtir beint, án þess að þurfa að umbreyta því fyrst í lifur. Það þýðir að áhrifin koma fyrr fram og stöðugleiki í styrk D-vítamíns verður meiri. Þetta hefur áhrif á efnaskipti, nýtingu kalks og fosfórs, og viðhald á ónæmisviðbrögðum – sem öll eru lykilatriði fyrir heilsu og frammistöðu kúarinnar.

Kýr sem fá Hy-D® eru betur undirbúnar fyrir burð, sýna minni tíðni af fæðingartengdum kvillum og skila sér hraðar í mjaltaskeið. Jafnframt fá kálfarnir betri broddmjólk með meira magni mótefna og eru því líklegri til að fá betri byrjun á lífinu.

Fyrir kýr á geldstöðu

Fyrir kýr sem eru ekki mjólkandi en ganga með kálf og undirbúa burð, er fókusinn á að byggja upp líkamsforða, ónæmi og vöðvastyrk – Hy-D® styður þetta með:

  • Betri upptöku á kalki – sem dregur úr líkum á doða eftir burð
  • Meiri og betri broddmjólk – með hærra magni mótefna (IgG) fyrir kálfinn
  • Sterkara ónæmiskerfi – færri sýkingar á borð við legbólgu eða fastar hildir
  • Stöðug D-vítamínstaða – tryggir jafnvægi í efnaskiptum og undirbýr líkamann
  • Minni þörf á sýklalyfjum – skilar sér í bættri velferð og lægri kostnaði

Fyrir Mjólkandi kýr

Hy-D® hefur verið bætt í allar fóðurblöndur Fóðurblöndunnar fyrir mjólkandi kýr. Ávinningurinn er mælanlegur og skilar sér beint í afurðum og heilsu:

  • Hærri mjólkurnyt – að meðaltali +0,8 kg/dag samkvæmt rannsóknum
  • Lægri frumutala – minna af júgurbólgu og sýkingum
  • Betri nýting á kalki og fosfór – sem styður við bein, klaufir og vöðvastarfsemi
  • Sterkara ónæmiskerfi – sem skilar sér í minni veikindum og lyfjanotkun
  • Aukin frjósemi – fleiri kýr festa fang fyrr
  • Stöðugari D-vítamínstaða í blóði – sem heldur líkamanum í jafnvægi yfir lengri tíma
Yfir 100 Rannsóknir sem staðfesta árangur Hy-D®

Geldstöðukögglar

Geldstöðukögglar Fóðurblöndunnar – Sérhæft fóður fyrir mikilvægasta tímabilið

Til að nýta alla kosti Hy-D® hefur Fóðurblandan þróað sérhæft fóður fyrir geldkýr – Geldstöðukögglana. Þeir innihalda ekki bara Hy-D®, heldur einnig hágæða prótein, E-vítamín, bíótín og magnesíum – allt efni sem styður við heilsu og frammistöðu.

Geldstöðukögglar

Tíminn fyrir burð er einn af lykilþáttum í fóðrun kúarinnar. Á þessum tíma þarf fóður að styðja við endurheimt, undirbúning fyrir afurðagjöf, sterkara ónæmiskerfi og heilsu kálfsins sem er að fæðast. Fóðurblandan hefur þróað Geldstöðuköggla sem uppfylla þessar kröfur – með áherslu á næringarlegan stuðning sem skilar sér bæði fyrir og eftir burð.

  • Innihalda Hy-D® sem tryggir hraðvirka og stöðuga D-vítamínupptöku fyrir sterkara ónæmiskerfi og betri nýtingu kalks

  • Eru próteinríkir og innihalda hágæða amínósýrur sem byggja upp líkamsforða fyrir mjaltaskeið

  • Eru bættir með E-vítamíni sem dregur úr bólgusvörun og styður við frumuvörn og mjólkugæði

  • Innihalda bíótín sem styrkir klaufaveggi og dregur úr líkum á heltu, sem er algengt vandamál eftir burð

  • Innihalda magnesíum sem styður við vöðvastarfsemi og efnaskipti, og dregur úr líkum á efnaskiptaóreglu

  • Kýr sem fá Geldstöðuköggla með Hy-D® sýna mæl­anlegan árangur:

    • 25% meiri broddmjólk

    • 20% hærra magn IgG mótefna

    • Minni tíðni legbólgu og fastra hilda

    • Aukning á mjólkurnyt eftir burð

 

 

  • Hy-D® og Geldstöðukögglar Fóðurblöndunnar skila sýnilegum og mælanlegum árangri – sem réttlætir fjárfestinguna:

    • 200 ml meiri mjólk á dag á hverja kú eftir burð

    • Sterkari kálfar – flutningur mótefna í broddi eykst og skilar sér í betri byrjun kálfs

    • Einn heilbrigður kálfur með betra ónæmi getur í raun borið kostnaðinn uppi

    Þessi árangur nær yfir allan kostnað við Geldstöðuköggla í 3 vikur og viðbót Hy-D® í mjólkurfóðri.

Mælt er með 3 kg á dag síðustu 3 vikurnar fyrir burð.

Árangur studdur af rannsóknum

Fjöldi rannsókna hefur sýnt að viðbót með Hy•D hefur jákvæð áhrif á heilsu, frjósemi og afurðir mjólkurkúa – allt frá geldstöðu og fram á mjólkurskeið. Hér má sjá dæmi ávinning þess að nota HY-D samkvæmt niðurstöður nokkurra slíkra rannsókna.

„Rannsóknir sýna að viðbót af Hy•D getur aukið mjólkurframleiðslu um allt að 3,9 kg á dag.“
— Byggt á samantekt DSM-Firmenich, 2024

„Hy•D stuðlar að bættri nýtingu kalsíums og dregur úr
hættu á kalkskorti í byrjun mjólkurskeiðs.“

— Silva et al., 2022

„Kýr sem fengu Hy•D sýndu hærri styrk broddmjólkur og lægri frumutölu.“
— DSM Feeding Trials

„Hy•D stuðlar að hærra magni mótefna (IgG) í broddmjólk, sem styrkir ónæmiskerfi kálfa og dregur úr hættu á sýkingum eftir burð.“
— Martinez et al., 2021

„Kýr sem fengu Hy•D urðu að meðaltali 19 dögum fyrr frjóar eftir burð og hófu næstu mjólkurlotu fyrr.“
— Martinez et al., 2021

„Viðbót Hy•D í geldstöðu hefur verið tengd við aukna frjósemi og lægri tíðni sýkinga eftir burð.“
— Martinez et al., 2021

„Hy•D hjálpaði til við að hækka blóðsykur og lækka bólguviðbrögð í geldstöðukúm, sem skilaði sér í betra starti eftir burð.“
— Samantekt DSM-Firmenich

„Viðbót Hy•D á geldstöðu tímabili eykur D-vítamínbúskap og bætir orkujafnvægi kúa í aðdraganda burðar.“
— Silva et al., 2022