Cilla er fljótþroska hafrayrki sem hefur verið lengi á íslenska markaðnum og unnið sér sess sem traustur kostur í ræktun. Yrkið hefur notið vinsælda vegna þess að það hefur reynst áreiðanlegt og skilað góðri uppskeru. Cilla hentar vel fyrir ræktendur sem vilja hafrayrki með þekkta og örugga frammistöðu við íslenskar aðstæður. Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.
Helstu kostir
Fljótþroska hafrayrki
Hefur verið lengi á markaði
Áreiðanlegt í ræktun
Gefur góða uppskeru


