Gondolin er túnvingull sem er sérstaklega þekktur fyrir mikið þurrkþol og hentar því vel í sendinn og krefjandi jarðveg. Tegundin er ólystug og er því fyrst og fremst notuð í landgræðslu fremur en til fóðurframleiðslu. Gondolin er harðgerð grastegund sem nýtist vel til að binda jarðveg, draga úr frostlyftingu og skapa betri skilyrði fyrir annan gróður, til dæmis birki, til að ná fótfestu. Ráðlagt sáðmagn er 25–30 kg/ha.
Helstu kostir
-
Mjög þurrkþolið yrki
-
Hentar vel í sendinn jarðveg
-
Harðgerð grastegund
-
Góð til landgræðslu
-
Hjálpar til við að binda jarðveg og draga úr frostlyftingu
Grasfræbl. Vallarfox 15 kg.
Landgræðslublanda 1 kg 

