Kría er miðlungi fljótþroska tveggja raða byggyrki sem hefur verið valið víða um land vegna öryggis og stöðugleika í ræktun. Yrkið hentar vel við mismunandi aðstæður, þó síður á austanverðu Norðurlandi. Norðanlands stendur Kría betur en sexraða yrkin og þar má láta hana standa lengur fram á haust. Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha. Kría er því traustur valkostur fyrir þá sem vilja örugga niðurstöðu.
Sáðkorn Bygg KRÍA 2R/700 kg
118.298 kr. með vsk
Miðlungi fljótþroska tveggja raða byggyrki sem er valið vegna öryggis og hefur hentað vel víða um land.
Ráðlagt sáðmagn er 180–200 kg/ha.
Sáðvörur í stórsekkjum er ekki hægt að versla í vefverslun. Hafið samband við sölumenn í síma 570 9800 fyrir nánari upplýsingar.
Garðablanda - Grasfræ 15 kg 

