Snorri er vallarfoxgras sem er afrakstur samnorrænna kynbóta, þar sem valdar plöntur komu bæði héðan og úr nyrstu héruðum grannlandanna. Yrkið er mjög vetrarþolið og því góður kostur þar sem harðneskjulegar aðstæður kalla á traust og þolið grasfræ. Snorri er nokkuð uppskerumikið, þó endurvöxtur sé lakari en hjá bestu yrkjunum. Ráðlagt sáðmagn er 20–25 kg/ha.
Helstu kostir
-
Mjög vetrarþolið
-
Afrakstur samnorrænna kynbóta
-
Nokkuð uppskerumikið
-
Hentar vel við krefjandi aðstæður
Strandreyr - Bamse 10 kg 

