fbpx

DeLaval á Íslandi

Í dag þann 1. október tekur Bústólpi alfarið við sem nýr umboðsaðili DeLaval á Íslandi. 
Með þessum breytingum hyggjast fyrirtækin auka skilvirkni og bæta enn frekar þjónustuna á þessum mikilvæga búnaði. Héðan í frá mun Bústólpi þá sjá um pantanir og sölu fjárfestingarvara, pantanir á varahlutum og á rekstrarvörum auk þess að sinna þjónustu líkt og verið hefur. 

Sjá heimasíðu: DeLaval – Bústólpi (bustolpi.is)

Áfram verður hægt að fá allar rekstarvörur fyrir DeLaval í verslunum Fóðurblöndunnar á Selfossi, Hvolsvelli og í netverslun fodur.is.

Óskar Svanur Erlendsson sem sinnt hefur starfi sölu og þjónustufulltrúa DeLaval hjá Fóðurblöndunni, mun fara í önnur verkefni innan fyrirtækisins. 

Ef einhverjar spurningar vakna vegna þessa ekki hika við að hafa samband við okkur á netfangið fodur@fodur.is eða hringja í síma 570-9800.