Fóðurblandan og BioMar í samstarf með íslenskt fiskafóður

Fóðurblandan hefur gengið til formlegs samstarfs við BioMar Group, eitt af fremstu fyrirtækjum heims á sviði fiskafóðurs. Samstarfið felur í sér að Fóðurblandan sér um framleiðslu og dreifingu fiskafóðurs á grundvelli fóðurlausna frá BioMar, sem markar tímamót í íslenskri fóðurframleiðslu og styrkir þjónustu við fiskeldisgreinina til framtíðar.

Þetta samstarf eykur verulega möguleika á staðbundinni og sjálfbærri framleiðslu á hágæða fiskafóðri. Með aðgengi að alþjóðlegri tækni, öflugri þróunarvinnu og sérfræðiþekkingu BioMar, ásamt sterkum innviðum og markaðsreynslu Fóðurblöndunnar, verður til öflugt bandalag sem styður við vöxt og þróun fiskeldis á Íslandi.

„Við erum stolt af því að stofna til viðskiptasamstarfs við BioMar Group. Þetta samstarf styður við okkar stefnu um að styrkja innlenda framleiðslu, stytta aðfangakeðjur og minnka kolefnisfótspor greinarinnar,“ segir Úlfur Blandon, framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar.

Verksmiðja Fóðurblöndunnar verður að hluta til endurbætt til að mæta auknum kröfum um gæði og afköst. Sala og þjónusta við viðskiptavini mun fara í gegnum BioMar Group, en framleiðsla og dreifing verður í höndum Fóðurblöndunnar.

Samstarfið felur einnig í sér stofnun nýrrar rekstrareiningar á Íslandi undir stjórn Mike McLeish, sem hefur víðtæka alþjóðlega reynslu úr fiskeldi. Með þessu samstarfi er lagður traustur grunnur að næsta kafla í íslenskri fóðurframleiðslu – þar sem alþjóðleg sérþekking og innlend reynsla sameinast í því markmiði að styðja við sjálfbært, stöðugt og samkeppnishæft fiskeldi á Íslandi.