Sjálbærnistefna Fóðurblöndunnar

Fóðurblandan leggur áherslu á sjálfbærni í rekstri og áherslu á að starfsemin hafi sem minnst áhrif á umhverfið. Fóðurblandan starfar eftir íslenskum lögum og reglugerðum samanber kröfum MAST/EU ásamt því að starfa eftir gæðastaðli Global Gap.

Það innifelur meðal annars eftirfarandi:

  • Við innkaup hráefna skal vottorð um heilnæmi vera til staðar. Hráefni skulu vera rekjanleg og fóður skal vera rekjanlegt til viðskiptavina.
  • Við mat á birgjum leitumst við eftir sjáfbærni og að okkar birgjar séu með virkt gæðaeftirlit.
  • Fóðurblandan er með það að leiðarljósi að nýta orkumiðla á hagkvæman og öruggan hátt. Fóðurblandan notar umhverfisvæna orkumiðla frá íslenskum orkufyrirtækjum, rafmagn og heitt vatn.
  • Fóðurblandan leitast við að lágmarka notkun rekstrarvara og sóun.
  • Áhersla er lögð á að lágmarka ryk og lyktarmengun.
  • Spilliefni eru geymd á viðurkenndan hátt til þess að lágmarka möguleika á mengun.
  • Lögð er áhersla á að lágmarka sorp með því að endurnýta þar sem því er komið við. Allur úrgangur sem ekki er hægt að endurnýja fer til förgunar hjá viðurkenndum aðilum.
  • Stöðugt er unnið að umbótum til þess að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið.