fbpx

Brútus Súper extra

3.220 kr.

Brútus Super Extra er fjölnota hreinsiefni, sem leysir upp m.a. olíur, tjöru, sót, fitu og prótín. Notkunarsvið Brútus Super Extra er fjölbreytt, t.d. til að þrífa veggi og gólf á verkstæðum, vélar og vélasamstæður og vinnugalla. Einnig hentar Brútus Super Extra vel til tjöruhreinsunar á farartækjum, til báta- og skipahreinsunar og til daglegra þrifa á ýmsu iðnaðarhúsnæði, t.d. fitugum gólfum í matvælaiðnaði og sótugum flötum á verkstæðum. Brútus Super Extra er einnig hægt að nota með þvottadufti til þvotta á óhreinum vinnugöllum með olíu, feiti og sóti og á öðrum þvotti með miklum lífrænum óhreinindum. Brútus Super Extra leysir mjög vel upp olíu, feiti og önnur lífræn óhreinindi. Brútus Super Extra inniheldur engin óæskileg leysiefni svo sem terpentínu og klórbundin leysiefni og hentar því sérlega vel til þrifa í lokuðum rýmum.

Á lager

Brútus Súper extra

Á lager