DeLaval á Íslandi
Í dag þann 1. október tekur Bústólpi alfarið við sem nýr umboðsaðili DeLaval á Íslandi.
Með þessum breytingum hyggjast fyrirtækin auka skilvirkni og bæta enn frekar þjónustuna á þessum mikilvæga búnaði. Héðan í frá mun Bústólpi þá sjá um pantanir og sölu fjárfestingarvara, pantanir á varahlutum og á rekstrarvörum auk þess að sinna þjónustu líkt og verið hefur.
Sjá heimasíðu: DeLaval – Bústólpi (bustolpi.is)
Áfram verður hægt að fá allar rekstarvörur fyrir DeLaval í verslunum Fóðurblöndunnar á Selfossi, Hvolsvelli og í netverslun fodur.is.
Óskar Svanur Erlendsson sem sinnt hefur starfi sölu og þjónustufulltrúa DeLaval hjá Fóðurblöndunni, mun fara í önnur verkefni innan fyrirtækisins.
Ef einhverjar spurningar vakna vegna þessa ekki hika við að hafa samband við okkur á netfangið fodur@fodur.is eða hringja í síma 570-9800.