fbpx

Kanna hagkvæmni þess að byggja áburðarverksmiðju.

Fréttatilkynning: Kaupfélag Skagfirðinga, Fóðurblandan og HS Orka hafa undirritað viljayfirlýsingu um framkvæmd hagkvæmniathugunnar á framleiðslu tilbúins áburðar

HS Orka, Kaupfélag Skagfirðinga og Fóðurblandan hyggjast rannsaka hagkvæmni þess að reisa verksmiðju til framleiðslu á tilbúnum áburði og hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis. 

Samstarfið felur í sér að framleiða “Kjarna” (NH4NO3) með innlendri, grænni orku til þess að uppfylla innanlandsþarfir fyrir tilbúinn áburð í föstu formi fyrir bændur og aðra sem þarfnast hans til ræktunar. Innanlandsmarkaður fyrir tilbúinn áburð er um 45-50 þúsund tonn á ári og árleg innanlandsþörf fyrir aðalfrumefnið, köfnunarefni (N), er 10 þúsund tonn. Því er gert ráð fyrir að framleiða þurfi 30 þúsund tonn af Kjarna til að fá þetta magn af köfnunarefni. Hluti hagkvæmnisathugunarinnar verður sömuleiðis að greina útflutningsmöguleika á Kjarna, framleiddum með grænni orku. Ef hagkvæmnisathugun leiðir í ljós að rekstur áburðarframleiðslu sé líklega arðbær munu aðilar taka næstu skref, en gert er ráð fyrir að hagkvæmniathuguninni verði lokið í september á þessu ári.

Markmið samstarfsins er að taka þátt í innviðauppbyggingu í landinu, auka öryggi íslenskrar matvælaframleiðslu, kanna útflutningsmöguleika á áburði sem framleiddur er með grænni orku og á sama tíma styrkja grunnstarfsemi aðila.

Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri KS leggur áherslu á rekstraröryggi íslenskrar matvælaframleiðslu og sjálfbærni hennar í sátt við umhverfi og samfélag: „Ef útkoman úr þessu verkefni verður jákvæð munum við efla þessa þætti. Þá munum við auka íslenska framleiðslu, fæðuöryggi þjóðarinnar, skapa fleiri störf og tryggja áburð til okkar viðskiptavina, bænda og annarra sem framleiddur verður með grænni íslenskri orku á verði sem íslenskur landbúnaður getur lifað við.“

Eyjólfur Sigurðsson, forstjóri Fóðurblöndunnar: „Þetta gefur okkur möguleika á að framleiða áburð með grænni orku og minnka með því kolefnisspor í íslenskum landbúnaði. Við erum háð óviðráðanlegum aðstæðum í löndunum í kringum okkur og þurfum því að auka sjálfstæði okkar í áburðarframleiðslu og nýta íslenska þekkingu til byggja upp íslenska framleiðslu.“

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku: „Við munum líta sérstaklega til þeirra möguleika sem felast í því að nýta aukaafurðir og verðmætastrauma frá öðrum fyrirtækjum í Auðlindagarði okkar, svo og hvort framleiðslan sjálf gæti nýst öðrum fyrirtækjum á svæðinu.   Þannig myndi verkefnið styðja bæði við innlenda hráefnisnotkun og við hringrásarhagkerfi svæðisins.“

Nánari upplýsingar:

Jóhann Snorri Sigurbergsson hjá HS Orku (johann@hsorka.is, sími 855 9304)
Eyjólfur Sigurðsson hjá Fóðurblöndunni (eyjolfur@fodur.is, sími 899 8750)
Sigurjón Rúnar Rafnsson hjá Kaupfélagi Skagfirðinga (sigurjon.rafnsson@ks.is, sími 864 6647)