fbpx

Erpsstaðir undirrita samning um kaup á DeLaval V300 mjaltaþjóni með ýmsum aukabúnaði

Erpsstaðir
Erpsstaðir
Erpsstaðir
Erpsstaðir

Fóðurblandan óskar fjölskyldunni á Erpsstöðum til hamingju með undirritun samnings um kaup á DeLaval V300 mjaltaþjóni með ýmsum aukabúnaði.

V300 mjaltaþjónninn mun verða settur upp á haustmánuðum og mun leysa af hólmi mjaltaþjón af gerðinni VMS Classic, sem þjónað hefur búinu frá árinu 2008. Má telja að meira hafi verið horft á þennan mjaltaþjón en aðra á landinu, þar sem hann er staðsettur í Rjómabúinu á Erpsstöðum. Þar er glæsileg verslun og framleiðsla á frábærum vörum  beint frá býli, þar sem hægt er að fylgjast með mjaltaþjóninum vinna og með framleiðslu á vörunum sem unnar eru úr mjólkinni. https://www.facebook.com/rjomabuid/

VMS Classic mjaltaþjónn leitar því að framtíðarheimili í sveit, tilbúinn að vinna að metnaðarfullri mjólkurframleiðslu með mjólkurgæði og velferð dýra og manna að leiðarljósi. 

VMS Classic voru uppfæranlegir á árunum 2007-2018 og má því segja að vel uppfærður og  viðhaldinn VMS Classic mjaltaþjónn geti verið  jafn góður, hvort sem hann var settur upp árin 2007 eða 2017. Gera má ráð fyrir því að áfram fáist íhlutir og rekstrarvörur fyrir VMS Classic, en mjaltaþjónar af þessari gerð hafa fengið framhaldslíf hjá nýjum notendum víða um heim.

Upplýsingar um nýja og notaða DeLaval mjaltaþjóna veitir Óskar í tölvupóstfangið oskar@fodur.is.

Vefverslun